|
|
07.10.2007 18:00:38 / kúkur
»
03.10.2007 15:20:42 / kúkur
Sælinú. Hehe , við Ragna Jara lentum í miklum hremmingum í gærkvöldi ! Svo er mál með vexti að við vorum að fara með sígarettur uppí bústað til Gumma. Á leiðinni á milli Egilsstaða og Einarsstaða (sumarbústaðahverfið þá heyrðum við miikil læti og bíllinn hristist þvílíkt þannig að við ákváðum að stoppa og tékka hvað væri í gangi. Það eina sem að mér datt í hug var "helduru nokkuð að það sé sprungið ?" auðvitað agnes. !! Þegar út var komið tókum við eftir því að dekkið var bara farið og felgan stóð ein eftir. Við svooooo miklar stelpur sátum inní bíl í algeru myrkri í hláturskasti! ákváðum svo að hringja í hann Begga. Hann og Elvar komu brunandi frá Egilsstöðum og byrjuðu eitthvað að fikta í þessu en brutu felgulykilinn hennar Rögnu. Felgulykillinn hans Elvars passaði ekki og ekki heldur sá sem að við fengum lánaðan hjá einhverjum bíl sem að keyrði framhjá. Strákarnir fóru inní Egilsstaði að ná í eitthvað hjá Boga þannig að við sátum einar eftir með teppi utan um okkur í útilegustól útá miðri götu að slúðra í svona korter með blikkandi hættuljós framaní okkur , hehehe. Svona 5-6 bílar keyrðu framhjá en engum datt í hug að stoppa og tékka hvað í ósköpunum væri í gangi !!!! allavega, svo komu þeir aftur og náðu að redda þessu en þá pössuðu ekki einhverjir boltar eða eh Svo að við máttum ekki keyra neitt lengra , þá fórum við bara. Keyptum okkur ís og fórum bara uppá vist. Ferð til einskis og Ragna 10.000 kr fátækari ! En samt svoooo fyndið ! Vildi bara segja frá þessu , minni á bloggið góða hér fyrir neðan ! 
meloveyoulongtime. ;*
»
02.10.2007 09:29:52 / kúkur
  
 
Elska þessa stelpu svoo mikið ! 
Hæ hoe's !  Hmm .. alls ekkert mikið búið að gerast hjá mér seinustu daga. Átti fyrstu "djammlausu" helgina mína í laaaaaaaaaaaaaangan tíma seinustu helgi. Vá hvað það var gott , á föstudaginn frétti ég að Andrea Björk væri í bænum með kallinn sinn svo að ég skellti mér á rúntinn með Rögnu og þeim skötuhjúum. Mjög fínt að hitta þessa stúlku. Ég, Andrea, Árni og Thelma rúntuðum svo yfir á fáskrúðsfjörð afþví að Andrea ætlaði að hitta Hildi en hún var nú ekki þarna. Ég kíkti í eitthvað partý og fékk svo far með Valda mínum heim um 1 ! Á laugardaginn var ég svo að vinna frá 10-6 , svooooooo lengi að líða , langaði að grenja sko ! Anywaay , eftir vinnu fór ég heim í klukkutíma sturtu eða eitthvað .. var svo bara heima að kúra með stelpunum mínum, Grétu, Rögnu, Bergey, Andreu og Thelmu .. Vááá ég hlakka svo mikið til 17 okt ! Ekki bara afþví að Gréta María á afmæli heldur er hún litla sætasta prinsessan mín að koma austur til frænku sinnar :* ! Hlakka svo mikið til að knúsa hana í ræmur og dúlla mér svo mikið við hana.  Löng helgi núna um helgina ! Losnum við föstudaginn. Agh hvað það verður gott Við stelpurnar ætlum að kíkja á ball á fáskrúðsfirði á laugardaginn. Veit ekki hvað planið er fyrir föstudaginn skoo .. vonandi eitthvað skemmtilegt ! Sit hérna í félagsfræði með Valda sofandi og Egill að brjáálast yfir Bubble Struggle. Það er gersamlega Bubble Struggle æði hérna í skólanum . Ég er búin að gefast upp , kemst ekki yfir 29 borð  Ég sakna Lindu minnar svoo mikið ! Farðu að koma austur og ekki bara í nokkra klukkutíma ! 
»
28.09.2007 19:18:18 / kúkur
Vááá. Var að skoða gömlu síðan mínu, ó guð minn almáttugur hve mikil gelgja ég var. Ég hló endalaust en um leið skammaðist ég mín svo mikið. Vona innilega að ég sé breytt, ef ekki ... geriði það segjið mér það www.folk.is/agnes_69 bendi sterklega á bloggin og vina linkinn. Ég er föst í leik. Hata þegar það gerist og ég bara get ekkert gert nema að spila hann, ræð ekki við mig. Ég er föst í borði 29 í Bubble Struggle Þetta er hættulegt, ekki fara í hann. Man þegar ég var alltaf í fyrsta leiknum, svo varð ég veik og mig dreymdi martraðir um þessar kúlur í 2 sólahringa, alltaf þegar ég sofnaði . Það var ógeðslegt. Talandi um martraðir, dreymdi furðulegasta draum í heimi áðan þegar ég tók minn góða blund !... Okay ég var inná Litla Hrauni að ná í eitthvað, ég veit ekki hvað og ég hélt á tölvunni minni og popppoka. Svo þegar ég var búin að gera það sem að ég þurfti að gera labbaði ég fram í setustofuna þar sem að allir voru og það voru svona fullt af ógeðslega skítugum rónum, einsog gaurarnir sem að búa á götunni og allir að stökkva á mig til að taka tölvuna mína. Ég hljóp að afgreiðsluborðinu bara "heyrðu ég þori ekki að labba í gegnum þessa stofu, er möguleiki á að ég komist hérna út. Ég þori ekki að fara hina leiðina" þá var afgreiðslumaðurinn bara eitthvað búhú, æjæj. Ömurlegur .. þannig að ég hljóóóp í gegnum þá og að útidyrunum þá var svo brött brekka upp að útidyrunum og ég dreif ekki upp svo að ég hljóp inní herbergi og faldi mig , svo sá ég gamla konu labba niður þessa "brekku" og bað hana um að hjálpa mér upp og hún heimtaði að eiga popppokann í staðinn . Ég gaf henni hann svo þegar ég var að fara út ætlaði hún með mér og ég skellti hurðinni, kramdi hana og hljóp í burtu .  Vaknaði svo , öll með svona fiðring útum allan líkama. Hafiði lent í því ? Ógeðslega óþæginlegt þegar manni er að dreyma eitthvað og maður er spenntur .. Hahahaha, í nótt dreymdi mig síðan að Gréta væri að verða of sein í íþróttir og ég var að vekja hana uppúr svefni, man eftir því. og hún eitthvað "nei ég ætla ekki að fara í íþróttir" sagði uppí svefni . Hehehe... En nóg um drauma.. Elska að vera komin heim. Kom heim kl hálf 3 fór beint uppí sófa með sængina mína, tölvuna og kveikti á sjónvarpinu og er búin að standa einu sinni upp eða eitthvað og það var til þess að borða tíhí , elska nýja sófann minn og svo eru mamma&abbi komin með 100 stöðvar eða eh . bestasta líf í heeeeimi ! Ætla að hætta núna, vildi bara aðeins láta í mér heyra . sakna þín og elska þig.:/ 
»
26.09.2007 15:41:06 / kúkur
Góðan daginn. Blogg segjiði. Hehe ... Sit hérna í sálfræðitíma með honum viktor mínum kæra ástmanni :* . Ógeðslega leiðinlegt . Erum bæði föst í bubble trouble !, ég er nú samt komin lengra en hann ! múhaha.. Ég veit ekki hvort að ég meiki að vera í þessum skóla. Hef ekkert nógu mikinn metnað, er svo oft veik ! Búin að vera veik í fimm daga samtals síðan að skólinn byrjaði . Óþolandi ! Er líka alltaf með ógeðslega mikla heimþrá, vill bara vera heima að kúra með mömmu og pabba ;*! Seinustu helgi fórum við stelpurnar á ball hérna á Egs. Var nú ekki lengi inná balli þar sem að dyraverðirnir tóku sig til og hentu öllum undir lögaldri út ! Mér hefur aaaldrei verið hent útúr valaskjálf áður !! Haha , en jæja ég tók því nú bara og labbaði út annað en ein af mínum vinkonum sem að tók upp á því að ráðast bara á greyið dyravörðinn. Hehe .. það var fyndið ! Fór út og lenti í mesta rugli í heiminum, svo kl svona 3 hálf 4 hringdu Bergey og Gréta í mig og báðu mig um að finna Rögnu Jöru. Fann hana alveg í sárum sínum inná balli, tók sinn tíííma að henda henni inní bíl og svo brunuðum við yfir ! Næstu helgar eru uppbókaðar af djammi hjá okkur Eða geta verið það .. núna um helgina er reyndar ekkert um að vera held ég ! næstu er ball á fásk, eftir það er óvissuball, eftir það kemur Beta austur og þá er partý hjá henni og svo helgina eftir það er Páll Óskar. þarna inná milli á Thelma afmæli 15 okt og Gréta María 17 okt !! :* Jiis. Oktober uppbókaður, svo verður nóvember og desember tekinn rólega, fyrir utan það þegar ég fer til Kanarý yfir jólin .. það verður vonandi fínt. Langar samt ekkert missa af íslenskum jólum een verð þó með mömmu, pabba, lindu og önju. Bið ekki um meira. :* Ætla nú að fara að halda áfram í sálfræði , eða Bubble Trouble .. kemur í ljós. 
»
23.09.2007 17:05:32 / kúkur
Britney - Sniglabandið & Nylon. : Ég fór einu sinni í söngvakeppni og söng lag með Britney þegar ég var þriggja og það var alveg á hreinu að ég bar af. og svo þegar ég á sviðið steig og ætlaði að gera allt vitlaus þá alveg óvart mig yfir leið , það kviknaði í svo ég lenti í þriðja sæti það voru engin læti heldur bara kæti yfir þessu öllu saman.... Ég ætla að verða einsog Britney Spears ég ætla að verða einsog hún úú beibeh beibeh ! Ég ætla að verða einsog Britney Spears ég ætla að verða einsog hún Og svo þegar ég verð fullorðin þá ætla ég að fara bara í meðferð rétt eftir að hárið fýkur af, já fýkur yfir hæðir Ég ætla að verða sú frægasta og syngja og dansa alveg einsog Britney og svo þegar ég eignast kærasta þá verður það sko gæji úr vatnaskógi bara, bara úr vatnaskógi dreifandi um mig rógi svo hendi ég honum Ég ætla að verða einsog Britney Spears ég ætla að verða einsog hún úú beibeh beibeh ! Ég ætla að verða einsog Britney Spears ég ætla að verða einsog hún Ég fór einu sinni í söngvakeppni og söng lag með Britney þegar ég var þriggja og það var alger óheppni að það skildi kvikn‘í og ég lentí þriðja sæti það voru engin læti heldur bara kæti. yfir þessu öllu saman.. Ég ætla að verða einsog Britney Spears ég ætla að verða einsog hún úú beibeh beibeh ! Ég ætla að verða einsog Britney Spears ég ætla að verða einsog hún Hit me baby one more time.........
eeelzka þetta lag  
»
21.09.2007 20:05:52 / kúkur
 Blablabla .... sem betur fer er fólk ekki að væla um það hvað ég er öömurleg að blogga. Segjir mér kannski að nákvæmlega enginn er að skoða þessa heimasíðu. En ætla nú samt að blogga, 50 manns komnir inná þessa síðu, einhverjir sem að bíða spenntir eftir bloggi ... eða hvað ? Allavega. Nýnemaferðin í gær. Ógeeeðslega gaman ... lögðum af stað kl hálf 10 eða eitthvað frá Egilsstöðum. Laangt stopp á Mývatni. 100 krakkar í biðröð inní samkaup ! Vorum komin á Ak kl hálf 2 og fórum þá strax á skauta. Vááááá hvað það var gaman Allir á svellinu, slökkt ljósin og dúndrandi tónlist ! Var nú samt ekki sú besta á skautum þarna fyrst, en æfingin skapaði meistarann ! Held samt að ekkert toppi hana Steinunni Ingibjörgu mína.  Eftir skauta fórum við uppí KA heimili og hentum draslinu inn og ég skipti um föt og svona, sveitt eftir skautana ! Þá kíktum við á eitthvða safn og svo var frjáls tími . Ég og einhverjir krakkar fórum inná Glerártorg, strauðum allar búðirnar á svona 10 mín og þá fórum við og fundum besta sófann í rúmfatalagernum og sátum þar í 2 tíma . Svo var maatur og bíó og eitthvað. Ég fór á Veðramót, góð mynd .. samt svo ógeðsleg ! Eftir bíó fórum við bara uppí KA heimili og vorum þar .. Ég, /-primadonnur, /_bam og lumsturnar HAHAHA .. fórum á þvílíkt "trúnó" , ég hef aldrei meira að segja gaman í honum án þess að hafa drykkina ! hehehe... svo um 4 ætlaði ég að fara að sofa en maður gat það auðvitað ekki fyrir einhverjum fíflum svo að ég fór bara eitthvað að spjalla við fólkið og sofnaði um 6. Í morgun vöknuðum við kl 9 , fórum að skoða VMA kl hálf 11 . Ógeðslega ljótt fólk í þessum skóla.. mættum einum gaur með grænt hár og ógeðslegar linsur og vá ég öskraði svo mikið beint fyrir framan greyið , brá svo ! Fórum svo á subway og lögðum svo af stað heeeim .

Takk fyrir geeeeeðveika ferð krakkar mínir !!! Annars hef ég voðalega lítið að segja ... skólinn gengur bara sinn vanagang , við Gréta ekki ennþá búnar að drepa hvor aðra ! Sem betur fer. Ég elzka nýja lagið með Britney minni , Gimme more .ooog ég elzka líka Love is gone , erobik lagið okkar góða! hahahha...  HAHAHA , www. Planið fyrir kvöldið er að fara uppa egilsstaði og tjútta smá, er nú samt að frétta það að Valaskjálf verði lokuð þannig að ég veit ekkert hvað ég geri . Vonandi kíkjum við nú samt uppá egilsstaði ! .. Ætla ekki að hafa þetta lengra í þetta skepteð ! Hate&War hehehehehEEHeh! 
langar alveg óttarlega ægilega í þessa skó !!
»
10.09.2007 11:26:04 / kúkur

Sælinú. Skólinn kominn á fullt skrið og svona skemmtilegt. Var veik í seinustu viku, frá miðvikudegi til föstudags. Missti heilmikið úr skólanum en reyni að bæta það upp..... Ég, Mamma, Pabbi og Íris skelltum okkur á akureyri um helgina. Hitti ömmu&afa, systkini pabba og fjölskyldur þeirra og svo Lindusystir og Önju mína. Vááá krúttlegast í heimi þegar ég hitti hana. Ég kom uppí bústað og allir voru útí potti nema Anja og amma og ég kom inn og byrjaði að tala við hana þegar hún sat í fanginu á ömmu. Hún sat bara og starði á mig, þekkti mig ekki alveg. Ég tók í höndina hennar og hún kreisti hana og starði bara á mig í svona 5 mín. Svo rétti hún fram hendurnar , ég tók hana og hún knúsaði mig í svona 10mín. Krúttlegast í heimingum. Annars var bara mjög fínt á akureyri. Kúr uppí bústað, kaffihús, versla og skemmta mér með ættingjunum! Var líka oooft þriðja hjólið alla helgina Hjá Írisi&Magga og Jóa&Ernu . svoo gaman !
í dag er rigning og rok. eeelska þegar það er svona veður, svo ógeðslega kósý að liggja uppá herbergi og kúúra yfir dvd. (meina læra mamma, ég lofa) .. hehe ! Annars er allt gott að frétta af mér sko. Hef bara svo lítið að segja, dagarnir allir eins. Skóli alltaf til 4 og svo bara eitthvað með krökkunum á vistinni eða rúntinum . Ætla að láta þetta gott heita núna, heyri í ykkur seinna og ég reyni að vera duglegri að blogga. p.s. andrea björk á kærasta 
»
02.09.2007 10:27:21 / kúkur
I'm hearin what you say but I just can't make a sound You tell me that you need me Then you go and cut me down, but wait You tell me that you're sorry Didn't think I'd turn around, and say... It's too late to apologize, it's too late ©©©©©©©©©©©©©©©©©©©
Hmm. Svolítið langt síðan að ég bloggaði seinast! Hef fullkomna afsökun ! Í fyrsta lagi er netið varla komið í lag uppá vist og svo hef ég verið tölvulaus alla vikuna. En ég mun reyna að halda þessu uppi núna, er komin með tölvuna og netið bara hlýtur að vera komið í lag. En jæja.. skólinn byrjaður og við stelpurnar fluttar á Egs. Þetta er svoooo fínt . Ég, Gréta, Thelma, Íris, Ragna og Hulda aallltaf saman. Ég og Gréta í 219 og Íris og Thelma í 217, bara við hliðiná ! Erum aalltaf þar eða inni hjá okkur. Svo er Ragna fyrir neðan okkur og Hulda uppí Valaskjálf. Ég er ógeðslega ánægð með stundaskrána mína , var reyndar sett í Ísl 103 en breytti því þar sem að ég er búin með hana og var sett í Sál 103. Mjög fínt. Er í 17 einingum og 6 áföngum. Í seinustu vikunni var busunin. Vááááá það var svo gaman. Á fimmtudaginn þá mættu stelpur ómálaðar, í öfugsnúnum fötum og með sundhettu eða brók á höfðinu og strákar mætti málaðir, í pilsi og með brjóstarhaldara... svo vorum við látin gera ýmislegt, þjóna böðlunum, standa uppi á stól í mötuneytinu eða inní skólahúsi og syngja fyrir framan alla og svona skemmtilegt.... Á föstudeginum var síðan busunin sjálf. Ég og Tinna sátum í tíma þegar það var ráðist inní tíma svona 15 böðlar öööskrandi og okkur hent útúr tíma ! Þá fórum við framá gang og þar voru aalllir , geðveikur hávaði, trommur og váá þetta var svoo skemmtilegt ! Svo vorum við látin gera ýmislegt, allir böðlar með matarolíu í flösku og alltaf verið að láta okkur drekka og hella yfir okkur og svo var drullubrautin , drulluleeeðja sem að við þurftum að skríða í, myglað hey, riisastór drullupollur sem að við þurftum að kafa í og aaah ! Ógeðslegt en samt svo gaman Svo var busunin búin um 3 og þá fór ég í laaaaaaaaaaanga sturtu og það tók ógeðslega langan tíma að þrífa mig. Svo lögðumst við Gréta og Ragna uppí rúm dauuðar og kúrðum okkur allan daginn. Um kvöldið var svo busaballið ! Váá besta ball í heeeimi .. fyrst fyrirpartý hjá Kröyer og Steinari Berg og svo ball. !!! Takk fyrir mig allir, þetta var æði. =) Í gær drulluðumst við Ragna ekki yfir fyrr en um 7 (a) , hehe of latar. Kom heim, lá uppí sófa aaalllt gærkvöld og var sofnuð fyrir 12 algerlega dauð.... Næstu helgi fer ég svo til Akureyrar að hitta alla ættingjana. Oh get ekki beðið eftir að hitta Lindu mína & Önju sætustu. Sakna þeirra svoo .. Ætla að hætta núna , kemur blogg í vikunni :*
»
20.08.2007 14:00:57 / kúkur

Oh ég verð að vera miklu betri í þessum bloggheimi. Get samt engu lofað um það eftir að ég byrja í skólanum, en ég reyni einsog ég get.´ Helgin var æðisleeg. Gréta og Margrét voru í bænum og skemmtum við okkur konunglega. Á föstudaginn fórum við á riisatónleika, ég kom í sjónvarpinu og svo kom mynd af okkur öllum á forsíðu morgunblaðsins á laugardaginn. Ekki slæmt það ! Eftir tónleikana tókum ég,Gréta,Ester,Aníta,Unnur og einhverjir strákar taxa uppí Árbæ, átti að vera eh partý en það var nú ekki ! Þá tókum ég,gréta,ester,anía,unnur og garðar taxa niðrí bæ og við vorum þar í einhvern tíma fyrir utan ellefuna , þá fór ég , gréta og garðar bara á rúntinn með Begga&Sveini Má. Svo lét ég þá bara skutla mér heim kl 4.  Laugardagurinn var leeeeeeeeeeti . Drullaði mér ekki útur húsi fyrr en kl 8 ! Þá fórum við Gréta niðrá Miklatún á einhverja tónleika, svo komu Margrét og hennar bólfélagi og við sátum þarna í góðu chilli í grasinu Svo löbbuðum við niðrí bæ og við Gréta týndum Margréti og co. straaax þannig að við vorum bara 2 allt kvöldið en hittum fuullt af fólki inná milli ! Ógeeeðslega gaman, örugglega eitt skemmtilegasta djamm sumarsins held ég núú ... svo ætlaði Gréta í eitthvað partý uppí Árbæ þannig að ég fór bara heim. ! Flutti svo heeim á sunnudaginn, vá hvað það var gott. Fór með Hjördísi og Betu á nesk í gær og svo komum við heim og vorum heima hjá Betu þangað til Ragna kom og um hálf 1 þurftum við að sækja Bergey byttu á Esk :* Hehehe.. svo fórum ég , Ragna og Beta heim til Betu og sátum þar að spjalla heeeillengi, sáum svo að kl var að verða 2 þannig að við ákváðum að slútta þessu ! hehe.. Flestir að flytja uppá vist á morgun. Nenni eekkert að byrja í skólanum. Beta líka að fara til Rvk á eftir, flytja :'/ .. oh það er öömurlegt ! En jááh, planið fyrir daginn er bara að eiga góóðan stelpudag með Rögnu,Bergey og Grétu örugglega. ! Krúttunum mííínum. ÆTLA líka að hitta Thelmuus, langt síðan að ég hef séð hana. ætla ekki að hafa þetta mikið lengra.. Gréta mín, takk fyrir æææðislega helgi. Þú ert langskemmtilegasti djammarinn minn í heimi Elska þig og get ekki beeðið eftir að vera með þér í allan vetur !:* Er að setja inn myndirnar frá Mallorca, og líka svo koma kannski myndirnar frá helginni bráðlega! hasta la vista focker.  
»
12.08.2007 20:03:41 / kúkur

Hmm , eftir þessi Mallorca ferð finnst mér
ekkert eins gaman að blogga og ég hef ekkert að blogga um
núna ! Helvítis útlönd ... leiðinlegt fyrir ykkur

Litla múslan mín hún Anja læsti sig inní
bílnum sínum á meðan ég var úti. Var þar föst í 1&hálfan
tíma á meðan það var verið að reyna að opna hann ! ;o ..
Fyrst hringdu Linda&Bassi á lögguna og hún kom í smástund
og fór síðan bara !!!! sagðist ekki geta hjálpað þeim og fór,
með 8mánaða gamalt barn læst inní bílnum ! Ótrúlegt sko... en
það endaði með því að það þurfti að brjóta rúðuna í bílnum og
ná prinsessunni út, greyið alveg orðin brjááááluð þarna inni
!
Ég er að pæla í að beila á Menningarnótt.
Langar að fara fyrr heim og hitta sumt fólk. (a);*
.. svo er vistin bara eftir 1&hálfa
viku . Er öll spennt .. 
HarryPotter þemað er búið hér á heimili og núna er það friends.
Erum komnar á seríu nr. 2 ! hahah... 8 eftir , Núna erum við að
horfa á Simpsons þáttinn á Íslensku . Shit þetta er glatað sko ,
vá. Algerlega búið að rústa Simpsons. ;s
Ég vil fá að hitta
þig Regína áður en ég flyt austur .. þetta geeengur ekki ! Ert
aldrei í bænum. 
En ætla að enda þetta með nokkrum
hamingjuóskum ... =)

Sonja, til hamingju með afmælið 7ágúst
;*


Þið 2 Margrét&Binni , til hamingju með
afmælið 9ágúst sætustu ;*



Nína,
Lindasystir & Konni, hamingju með afmælið á morgun 13
ágúst. :*
hahaha.. vona að þetta sé komið ! ... kem með skárra
blogg seinna. ætla að fara að horfa á simpson ;* og það koma inn
myndir frá mallorca þegar ég kem heim heellingur af þeim
!
»
10.08.2007 23:25:17 / kúkur
Hææææ . Er sko komin heeim , langar
nú ennþá að vera þarna úti. Liggja í sólbaði í 28-35 stiga hita ,
synda og ekki hafa áhyggjur af neeeeeeeinu. ! Svo ljúft.
En jæja, þetta var ógeðslega fín ferð. Vika kannski aðeins of
stutt en samt svo ekki, var komin með heimþrá hehe .. en jáá.
leigðum hjól 2 daga og hjóluðum útum allt, fórum í vatnsleikjagarð,
gamla bæjinn að versla. svo var skýjað einn daginn þannig að við
leigðum bíl og keyrðum til Palma , höfuðborgin og veeersluðum
auðvitað ;p heheh... svo var bara legið í leeeeti , borðað og
tjúttað smáá ! æj svoo fínt...
er að pæla í að fara uppá akranes á
morgun til regínu ! stelpan búin að sakna mín svoo mikið
hehe , svo er gaypride líka! flyt svo heim eftir 9 daga beibeh
... Gréta hætt við að fara til hollands úta mér þannig að ég
verð sko ekkert ein á vistinni eeen nenni ekki að blogga
meira, ætla að enda þetta á einhverjum spurningalista sem að ég
fann einhverstaðar !
áttu
vans skó;
já
Áttu kawasaki skó; já
áttu convers skó;
já heheh áttu
ipod;
ja levi's
buxur;
já
en diesel;
já nokkrar
fermdistu útaf pökkunum;
já, trúi ekki á guð. Hefuru
flutt oftar en einu sinni;
nei
ferðu reglulega í klippingu;
a
áttu samlokusíma;
já
áttu svört rúskinns stígvél;
já, bara gömul. nota þau ekki í dag
áttiru pókemon þegar það var mjög svo
töff
; já .
hehe
áttu heimasíðu;
já
áttu sólgleraugu;
já genguru
yfirleitt með skartgripi ;
alltaf með hringa og hálsmen
áttu blettatígrabol ;
nei, er ég þá glötuð ?
hefuru sofnað í tíma ;
já.
oft
sleppt því að læra heima ;
hef ekki lært almennilega heima síðan í
7-8bekk, en er að fara að byrja á því aftur.
hefurðu verið tekinn af löggunni;
nei !
»
05.08.2007 18:54:09 / kúkur
Hallo.
Sit her inni einhverjum leikjasal og stalst i tolvuna i sma stund,
tihi .. vildi bara lata vita af mer !
Buid ad
vera heavy fint, liggja i solbadi aaallla daga , leigdum hjol i
gaer og i dag og hjoludum mjog mikid, ogedslega gaman ! Forum i
gokart i gaer og i vatnsrennibrautagard i allan dag og svo audvitad
tjutta sma med gomlu. Forum alltaf a sama barinn, Oasis . ogedslega
skemmtilegir tjonar og alltaf live music , sjuklega fint ..!
30-35 stiga hiti a daginn og 25-30 a kvoldin og naeturnar !
Kem heim kl 5 a fostudaginn og ta verdur strax tekid islenskt djamm
a tetta med reginu og co. ;*
aetladi
bara ad lata vita af mer, set inn eina mynd herna.. svoldid tonud
sko 5dagar eftir beibii ....
»
03.08.2007 01:19:39 / kúkur

mmmmm.!
Jæja börnin góð. Nú er komið að því tíhí
..... er nebblega að fara útá flugvöll eftir 2 tíma og til
mæjooooorka don't worry be happy, ég verð bara í viku
svo að það verður ekki langt bloggleysi , hehe.
ætlaði bara að kveðja ykkur. verð ekki með
símann minn ! hafið það gott, veriði dugleg að henda inn
söknuðar kommentum og hafði það ógeðslega gott um versló.
;p
Let's lose
control, of body and soul.
Don't move too fast people just take it slow.
Don't get ahead, just jump into it.
Y'all here about, the peas'l do it.
Get started, get stupid.
Dont worry bout it, people will walk you through it.
Step by step like you're into new kid.
Inch by inch with the new solution.
Transmit hits, with no dillusion.
The feeling's irresistible and that's how we move
it.
»
01.08.2007 00:19:35 / kúkur
Vá. Ég
hef aldrei fundið fyrir jafn sterkri heimþrá eftir að flutti heldur
en núna. Ótrúlegt, þegar maður býr fyrir austan og er það þá
haaatar maður þennan bæ. Langar svo að komast burt frá öllu og
helst sem lengst í burtu. Ég gat ekki beðið eftir að komast frá
Reyðarfirði og vera hérna í Reykjavíkinni......
Ég
labbaði útúr Kringlunni í gærkvöldi með Emmu, Betu og Írisi. Kl var
hálf eitt og allt var ógeðslega dimmt , það er sumar ... ?
allavega. stóðum þarna fyrir utan í rigningu og mjög dimmt og váá .
fékk í magann það minnti mig svo á Reyðarfjörð !! Ótrúlegt.. bara
þegar við stelpurnar stöndum fyrir utan Shell eða eitthvað , veit
ekki hvað þetta var. En ég hef ekki getað hætt að hugsa um þetta.
Hehe fyndið hvað "óveður" minnir mig á Reyðarfjörð. Núna er víst
brjálað veður fyrir austan og mig langar svoooo heim. hehehe
skondið .
Mér
finnst ömurlegt hvað við erum orðnar "gamlar" .
Mig langar bara ennþá að vera í 7-8-9 bekk og ennþá í skóla með
öllum stelpunum og öllum bekkjarfélögunum mínum. Að hugsa til þess
að ég eigi aldrei eftir að upplifa skólatíma með
þeim öllum aftur, ALDREI. Allir að fara í sitthvora áttina Mér
finnst það ömurlegt .. og að fara úr Grunnskólanum. Engar frímó
þegar við hlupum heim til Rögnu , ég Ragna og Gréta. Engin nesti
þar sem að allir sitja saman í sófanum með brauðin sín, ekkert
þorrablót sem að maður beið allt árið eftir og kveeið svoo fyrir ef
að það kæmi eitthvað um mann þar, engin árshátíð sem að var tekin
heil vika í það að æfa eitthvað 5 mín. leikrit hehe, engin rifrildi
við kennarana, skólastjórann eða gangaverðina fyrirgefiði elsku
kennarar hvað ég var ömurlegur nemandi. hehe...
Sakna
líka þegar við fórum alltaf öll saman út á röltið. Héngum inní
sjoppu ef að það var kalt en löbbuðum síðan fraaaaaaaaam og til
baka um bæjinn endalaust um bæjinn. Enginn með bílpróf nema
einhverjir eldri strákar og maður var alltaf að stelast til að fara
á rúntinn með þeim (mamma bannaði ) og lét þá síðan henda
manni út fyrir neðan götuna, haha. Stelast til að hanga niðrí
sjoppu ( enn&aftur mamma ..) heheh . og þegar það var ýkt mikið
sport að vera lengur en 10 úti, það var geðveikt. ZVESKJAN ! sakna
hennar öll diskóin, geeeveikt að vera þarna til 12 og svo beið
pabbi fyrir utan . æj vá.. hehehe
----------------------------------------------------------------------------------------------------------
En yfir
í annað. Ég vil spurja ..
Er ein
manneskja í öllum vinahópum sem að fólki finnst hundleiðinlegt að
djamma með. ;s? Ég er ekki að beina þessu á eina einustu manneskju
, en ég veit bara um svoo margar svona manneskjur. Maður fer í
partý eða á ball allur vinkonuhópurinn saman og svo er ein vinkonan
sem að drekkur sig alltaf svo ógeðslega fulla og
verður hundleiðinleg, drepst og maður þarf að enda kvöldið sitt
þannig að redda henni, uppúr sinni eigin ælu, klæða hana í fötin og
drösla henni þar sem að maður gistir. og þar með er kvöldið hjá
hinum vinkonunum ónýtt. Eru svona manneskjur í öllum vinahópum ?
vonandi ekki .......
----------------------------------------------------------------------------------------------------------
Ég er
komin með myspace www.myspace.com/agnes_bjork yeaaah . kann ekki neitt á þetta
en það er bara flippað er samt eki síðan mín sææt, gvuð er svo
skotin í henni... !
ég er að
fara út eftir 2 daga, bara minna fólk á það. er búin að finna
nokkra kjóla inní skáp hjá systir minni. ég hef
aldrei gengið í kjól áður og þessvegna líður mér
fáránlega í þeim, verð eiginlega bara að vera í þeim þangað til að
ég fer út... venjast þeim ;s
tók auðvitað sjálfsmyndir til að syna ykkur 1 þeirra sem
að er svo sætur..

heavy
sætur..
og svo
eru einhverjir fleiri sem að ég tók ekki mynd af .. er mest
skotnust í þessum !
greyin
mín hættiði að væla að ég bloggi of mikið !! stundum væliði yfir að
ég bloggi aldrei og stundum að ég bloggi of mikið, fockið ykkur !
ég get hætt að blogga ef að þið viljið ??
peace&love.

»
Síður: 1 2 3 ... 12
|
|